Heilræði
Varahlutir og verkfæri
Algert lágmark
Næring Gera þarf ráð fyrir að komast í gegnum 4-6 tíma hjólaferð á fjöllum. Þáttakendur þurfa að vera með tvö "energy bar" eða tvær brauðsneiðar eða aðra næringu uppá +500 kcal. Sérstakelga þarf að huga að aðgengi að vatni. Ekki er víst á leiðinni sé rennandi drykkjarhæft vatn. Slíkar upplýsingar eru gefnar út fyrir hverja keppni. Hugsanlega eru settar upp drykkjastöðvar á leiðinni. |
Mat á aðstæðum og eigin getu Á leiðunum eru mögulega kaflar sem geta talist hættulegir hjólandi fólki. Hver og einn verður að bera ábyrgð á sjálfum sér og meta eigin getu. Það er í góðu lagi að bera hjólin yfir/niður erfiðustu kaflana. Hjólabúnaður Fjallahjól er lágmarksbúnaður. Það er vel hægt að fara á hardtail en fulldempað hjól er betri kostur. Hjálmaskylda er í keppninni. Fullface hjálmar eru æskilegir. Hnéhlífar, hanskar og annar hlífðarbúnaður einnig æskilegur. Leiðsaga Skipuleggjendur munu reka lestina og leitast við að skilja engan eftir. Við mælum þó eindregið með því að fólk taki GPS tæki eða GPS leiðsöguhugbúnað í smartsíma. Leiðin verður lítið merkt, þátttakendur verða að reiða sig á eigin leiðsögu eftir grófu korti eða GPS trakki. GPS hugbúnaður í Android tæki GPS hugbúnaður í Apple IOS tæki GPS hugbúnaður í Windows tæki |
Fatnaður
Á Íslandi er allra veðra von, jafnvel á sumrin. Gerið ráð fyrir því að geta komist í þurran undirfatnað og vera með regn og vindheldann jakka að lágmarki. Það er gott að gera ráð fyrir því að þurfa að bíða eftir björgun í kaldri rigningu, þoku og roki ef eitthvað kæmi uppá. Leiðir geta legið yfir læki eða ár. Auka sokkar gætu komið sér vel. |