Umhverfisstefna Enduro Ísland
Við bætum meira en við tætum!
Eitt af höfuðmarkmiðum Enduro Ísland er að kynna almenning fyrir hjólreiðum á fjöllum sem útivistarformi . Enduro Ísland leggur ríka áherslu á ábyrga umgengni við náttúru landsins. Þáttakendur í viðburðum eru sérstaklega upplýstir um viðkvæm svæði og umhverfisstefnu Enduro Ísland.
Skoðun
Öll umferð um náttúru hefur einhverjar afleiðingar. Þegar slóðar verða til er það oft vegna þess að fólk hefur í aldanna rás komið sér saman um að fara sömu leiðina frá A til B. Halda þannig “skemmdum” á afmörkuðu svæði. Stígur er í eðli sínu rispa í náttúrunni og er einskonar óskrifað samkomulag um eina rispu í stað margra. Útivistariðkun í náttúru almennt hefur tilhneigingu til að rækta virðingu, þeirra sem útivist stunda, fyrir náttúru og landi. Útivistarfólk og náttúruunnendur eru líklegir til að taka upp hanskann fyrir náttúruna og standa fyrir náttúruvernd - en eins og fyrr segir kostar það ákveðið aðgengi að náttúrunni. Við hjá Enduro Ísland teljum að það sé hagur náttúrunnar að kynna hana fyrir sem flestum óháð því með hvaða ábyrga móti er ferðast um. M.ö.o. það sáralitla rask sem ábyrgt útivistarfólk veldur er fórnar-kostnaður sem stendur undir sér.
Skipulag viðburða
Þegar Enduro Ísland skipuleggur hjólaleiðir fyrir sína viðburði er ávalt horft til þess hvort að viðkomandi leið beri þá umferð sem gert er ráð fyrir. Enduro Ísland hefur á að skipa mjög reyndu útivistarfólki sem er vel bært til að leggja mat á slíkt.
Forvirkar og framvirkar aðgerðir.
Enduro Ísland stendur fyrir vinnudegi ár hvert þar sem meðlimir koma saman og vinna fyrir náttúruna. Ýmist í formi þess að rækta land, bæta land eða endurbæta og byggja stígakerfi. Tilgangurinn og markmiðið er að tryggja að við bætum meira en við tætum.
Enduro Ísland ástundar jafnframt boðskap um ábyrga náttúrumgengni á samfélagsmiðlum og víðar.